Verkefni fyrir Barnamenningarhátíð ❤️
23. 02. 2017
Barnamenningarhátíð í Listasafni Einars Jónssonar
28.apríl 2017 föstudagur kl. 15.00
Við ætlum að gera þrautabraut í garðinum og vera með opnunargjörning á föstudeginum.
Gjörningurinn er börnin að fara þrautabrautina - fallegt
Undirbúningur sem við öll tökum þátt í og börnin framkvæma með kennaranum sínum
-skoða grunnteikningar af garðinum og ræða
-fara og skoða garðinn af svölunum
-skissa hugmyndir af þrautabraut í garðinum
-fara og fylgjast með þegar tré er hoggið í garðinum -tré sem verður síðan sneitt niður í skífur ofl til að nota í þrautabrautina sjálfa
Þessu ætlum við að byrja á í næstu viku
Allar hugmyndir að náttúrulegum efnivið eru velkomnar
-það sem er komið er tré sem breytist í skífur og klofna drumba oþh
Hún Sigríður Melrós safnstjóri hjá Listasafni Einars Jónssonar er í samstarfi með okkur og bíður spennt eftir að fá hópana í heimsókn. Útsýnið af svölunum er mjög flott.
Kærar kveðjur,
Þórunn Eva
Auður Anna
Dagbjört